mánudagur, desember 18, 2006

Jólatjútt


Seinasta helgi var gleðihelgi hér í París eins og sjálfsagt annarstaðar. Seinasta helgi fyrir jól og ekki seinna vænna en að halda upp á það. Fórum í jólaboð þar sem "dress code" var að strákar áttu að vera í svörtu að neðan en hvítu að ofan en stelpur öfugt, svörtu að ofan og hvítu að neðan. Nicolas, einn úr vinahópnum sem er kokkur töfraði fram nokkra rétti og hver og einn kom með a.m.k eina kampavínsflösku. Síðan var dansað eitthvað framundir morgun. Vorum reyndar eitthvað slöpp skötuhjúin og vorum komin heim um þrjúleitið. Það er af sem áður var þegar helgarnar voru til að djamma. Núna eru þær til að slappa af og hlaða batteríin fyrir vikuna.... og við erum ekki einusinni með börn! Kanski er þetta líka skamdegið sem hefur þessi áhrif.

1 Comments:

Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir said...

En skemmtileg stemning. Elska partý þar sem aðalmálið er að borða og dansa -mmm. vona að þú hafir það gott yfir hátíðarnar. Gleðileg jól ;)

23 desember, 2006 17:20  

Skrifa ummæli

<< Home

eXTReMe Tracker