fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Stress og stífelsi

Átti fund með professornum mínum í gær út af ritgerðinni. Því er ekki að leyna að ég er komin inn á stress tímabilið, þetta verður því greinilega stífur vetur framundan. Annars er ekkert eftir að gera en að klára þessa ritgerð. Verst hvað það er ógeðlega mikil vinna framundan og mér finst ritgerðin full af einhverju bla bla bla !

7 Comments:

Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir said...

Kannast við tilfinninguna!!! Ekki þægileg.

10 nóvember, 2006 17:45  
Anonymous Nafnlaus said...

ég er svo í sömu stöðu með mastersritgerðina,, finnst eins og hún verði aldrei búin enda varla byrjuð,, en gangasöfnunin endalausa tekur nú samt enda um áramót, jibbí.. vona svo bara að ég hristi þessa ritgerð fram úr erminni, reyni bara að vera bjartsýn

10 nóvember, 2006 19:29  
Blogger brynjalilla said...

Hentu blablainu, ekki hanga í einverju tilfinningalegu tengsladæmi við texta sem kannski eru góðir en eiga ekki heima í ritgerðinni. Slíkt er eins og flís í litlaputta, ekki yfirgripsmikið en hefur áhrif á allan líkamann. Gangi þér vel músin mín og vonandi sjáumst við eftir 2 vikur. Knús.

11 nóvember, 2006 20:20  
Blogger Fnatur said...

Vildi bara senda þér baráttukveðju. Þetta á allt eftir að ganga upp, það gerir það alltaf furðulegt en satt.

Kær kveðja, Fanney

12 nóvember, 2006 16:08  
Anonymous Nafnlaus said...

Já það er svona alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni :-)
En hérna þá er gulrótin að við Siggi komum um jólin og það verður svo gaman hjá okkur saman að snúllast um París
Knús og kossar
Inga (með steypuryk um allt og heimilið í rúst)

13 nóvember, 2006 15:12  
Blogger Vallitralli said...

Komin inn í "kill your darlings" tímabilið, alltaf erfitt en nauðsynlegt.

Keep on truckin´

14 nóvember, 2006 10:00  
Blogger imyndum said...

:) takk allir fyrir hvatninguna, gott að vita af ykkur..

14 nóvember, 2006 15:13  

Skrifa ummæli

<< Home

eXTReMe Tracker