föstudagur, nóvember 03, 2006

Gamlar myndir

1. nóvember kom veturinn með trukki. Vetrarkápur, hanskar og húfur hefur allt verið tekið fram. Glugganum í eldhúsinu sem stendur alltaf opinn er nú lokað yfir nóttina.

Rölti inn í litla búsáhaldabúð hér við hliðina áðan þar sem er komið fullt af jóladóti. Keypti litla seríu og þegar ég var að velta því fyrir mér hvað ég ætti að setja hana réðst ég hömlulaust uppúr þurru á körfu sem er hér uppi í hillu. Þetta er ein af þessum körfum sem lætur ekki mikið yfir sér en tekur drjúgt við. Þangað fara hlutir og liggja í langan tíma. Þar fann ég meðal annars metrokort af London, uppþornaðan penna, rafhlöður og geisladisk með myndum af okkur Þórdísi síðan hún kom og heimsótti mig í febrúar 2003.

Hér sitjum við á littlum veitingastað á Montmartre hæðinni

Þórdís niður við stútfulla Signu

Við að frjósa úr kulda uppi í Eiffel turninum

Á þessum tíma var ég bara búin að búa hér í hálft ár. Ég leigði gamalt vinnukonuherbergi undir kvisti á Avenue Victor Hugo í 16hverfi. Herbergið var um 9 m2 en með sturtu. Það er að segja, það var búið að planta sturtuklefa upp við einn vegginn rétt við útidyrahurðina. Ekki nema 2 skref upp úr rúminu á morgnana og í sturtu.

Á herberginu voru 2 stórir gluggar, eða 4 eftir því hvernig maður telur þar sem þeir opnuðust um miðjuna og út... held það séu hreinlega kallaðir "franskir gluggar" í þeim var hinsvegar bara einfalt gler og það varð frekar kalt í herberginu mínu yfir veturinn enda bara einn lítill ofn til að hita herbergið og svo rafmagnsplata til að elda á sem hitaði vel útfrá sér. Hurðin fram á gang var heldur ekki mjög þétt að neðan og fékk ég þannig alltaf "frískt loft" inn í herbergið.

Í herberginu góða... "eldhúsið" og sturtuklefinn


Það besta við þessar vistarverur var að klósettið var frami á gangi. Ég þurfti að fara fram út og yfir þröngar svalir (ég bjó á 8 hæð...með liftu) við hinn enda svalanna gekk maður aftur inn undir þakskyggnið og inn í bygginguna. Þar var kósettið sem fyrstu 2 mánuðina var svokallað "tyrkneskt klósett", þ.e. bara gat. Hamingjusamlega var "evrópskt" klósett sett upp rétt eftir að ég flutti inn. Einnig þurfti maður að passa að taka með sér regnhlíf ef ringdi þar sem svalirnar voru undir stjörnubjörtu. Þórdís fékk reyndar flog þegar hún sá leiðina á klósettið enda sjúklega lofthrædd en þetta vandist fljótt og svei mér ef hún læknaðist ekki bara á lofthræðslunni.


Samt fór alls ekki illa um mig. Ég var bara nokkuð ánægð þarna í kyrunni minni, enda bjó ég þar bara fram á sumar.

Sakna svosum einskis þaðan heldur, nema þá helst útsýninsins að Eiffel turninum.

3 Comments:

Blogger brynjalilla said...

jiminn varstu ekki með næturgagn?

04 nóvember, 2006 00:18  
Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir said...

Týpískt stúdentaherbergi. Var á einu svipuðu þegar ég dvaldi í London sem skiptinemi eina önn á sama tíma og þú bjóst þarna, þ.e. 2003 - var á kampus í 7 vikur af mastersnáminu mínu. Gaman að hafa þessu reynslu, svo lengi sem maður þarf ekki að snúa til baka í eitt slíkt herbergi!

04 nóvember, 2006 23:05  
Blogger imyndum said...

Það er satt. Það er fullt af fólki hér í París sem býr í svona herbergjum, jafnvel með fjölskyldu. Svakalegt!

Nei, Brynja ég vakna sjaldan til að fara á klósettið á næturna... sem betur fer. Það hefði ekki verið skemtileg staða ;)

05 nóvember, 2006 09:59  

Skrifa ummæli

<< Home

eXTReMe Tracker