fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Eiffel Turninn


Náði þessari annars artý fartý mynd af Eiffelturninum seint í gærkvöldi þar sem við vorum í leigubíl á leiðinni heim úr matarboði. Þokan lá þétt yfir borginni og gerði hana þögla og yfirgefna eins og þéttri þoku er einni lagið.

18 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er svaka töff :-)

30 nóvember, 2006 14:20  
Anonymous Nafnlaus said...

Ormur i kokglasi

30 nóvember, 2006 16:08  
Blogger brynjalilla said...

ah hljómar eitthvað svo þægilega, þögult er gott...allavega svona á milli mátulegs skammts af ys og þys. Myndin er falleg eins og þú.

30 nóvember, 2006 16:08  
Blogger brynjalilla said...

ps:mér finnst kokglas fyndið orð, minnir mig á mjög svo nytsamlegt glas sem er til að mæla hættugildi smáhluta sem geta verið hættulegir smábörnum.

30 nóvember, 2006 16:10  
Anonymous Nafnlaus said...

Kannski ormur í stormi? Mér finnst ormar svo góðir.

30 nóvember, 2006 16:13  
Anonymous Nafnlaus said...

Einmitt það sem ég var að velta fyrir mér hvort ormar í kókglösum væru góðir. Ræðum þetta aðeins.

30 nóvember, 2006 16:22  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég hef nú aldrei smakkað þá í kókglasi. Fyrir mér hefur mjólkurglas alltaf verið málið. Láta orminn liggja í ca 30 mín og þamba svo.

30 nóvember, 2006 16:24  
Anonymous Nafnlaus said...

Þarf það þá að vera mikill stormur eða bara svona meðal?

30 nóvember, 2006 16:24  
Anonymous Nafnlaus said...

En aftur á móti myndast þeir ekki jafn-vel þannig.

30 nóvember, 2006 16:24  
Anonymous Nafnlaus said...

Sko ég hef heyrt að ormum líði ekki vel í stormi. Oft skynja þeir storminn langt á undan okkur og skríða í felur.

30 nóvember, 2006 16:26  
Anonymous Nafnlaus said...

Eru ormar með húð eða ekki? Ef svo fer þá kókið ekki illa með húðina

30 nóvember, 2006 16:28  
Anonymous Nafnlaus said...

Jú, en þeim er sama, því kók er bara svo ógeðslega gott. Frændi minn átti orm og ormurinn neitaði að drekka annað.

30 nóvember, 2006 16:31  
Anonymous Nafnlaus said...

Veit einhver hver á þessa síðu? Hver er þessi Rósa? Ég hef nú sjaldan lesið annað eins.

30 nóvember, 2006 16:33  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er þá svipað og í laginu Með þrjú á palli.

Einu sinni átti ég orm
Einu sinni átti ég orm
Hann vild aldrei vera norm
og át barasta langan gorm

30 nóvember, 2006 16:33  
Anonymous Nafnlaus said...

Hin félagslega hugsmíðahyggja sem 3 á palli aðhyllast hefur nú aldrei átt upp á pallborðið hjá mér. En ljóðið stendur fyrir sínu, hvað sem öðru líður.

30 nóvember, 2006 16:36  
Anonymous Nafnlaus said...

Hún Rósa á víst þessa síðu. En annars með þessa orma þá held ég sko að kók fari illa með tennurnar í þeim.

30 nóvember, 2006 16:36  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er ekkert Effel turninn. Þetta er meira svona snjókarl að kíkja í gegnum runna. Frekar perralegt sko ef þið spyrjið mig.

30 nóvember, 2006 16:44  
Blogger Fnatur said...

Minnir mig pínu á gömlu álfabrennurnar á þrettándanum. Rosa töff.

Margir nýjir "vinir" búnir að kommenta haha. Gaman af því.

30 nóvember, 2006 19:51  

Skrifa ummæli

<< Home

eXTReMe Tracker