fimmtudagur, apríl 27, 2006

Heimsóknir - Tengdó og Brynja



Heil vika frá seinasta bloggi! Heilmikið gerst og ég lítið heima. Matarboðið hér heima á sumardaginn fyrsta með tengdó tókst vel og ég held ég hafi bara staðið undir nafni sem sá eðalkokkur sem hún var búin að heyra af. Rúsínan í pylsuendanum voru náttúrulega íslensk nóa og sirius páskaegg sem gerðu lukku.

Á fösudagsmorguninn kom svo sumarið í París. Yfir 20 stiga hiti og sól. Við fundum okkur veitingastað í Mýrinni, sem er homma og gyðingahverfið hér í París fyrir þá sem ekki vita. Og borðuðum úti í fyrsta sikpti þetta árið. Yndisleg tilfinning. Þetta er gamalt hverfi er með fullt af þröngum götum sem liggja hver í sína áttina og því ekki mikið um bílaumferð, en endalaust líf af fólki. Þessi mynd af okkur Mögdu er einmitt tekin þar sem við erum að skoða matseðilinn.

Hún fór svo aftur til Ítalíu á laugardeginum og flaug út til Egyptalands á mánudeginum eftir 5 vikna dvöl í Evrópu, með of stuttu stoppi í París að eigin sögn. En á það ekki einmitt að vera svoleiðis, til að mann hlakki strax til að koma aftur. Svo verður næsta skipti sem við hittumst vonandi í Egyptalandi. Með sólhatta og blævængi.

Laugardagurinn var ekki bara viðburðarríkur að þessu leiti heldur líka af því hún Brynja kom í bæinn. Mikið var gaman að hitta hana :) Kom með háskólanum frá Svíþjóð í safna ferð. Röltum saman í sólinni og blöðruðum á íslensku. Elskan hann Marwan er svo yndislegur að hann var ekkert að stressa sig á því að skilja ekki umræðurnar. Um kvöldið fórum við stelpurnar svo á bar á rue de Lappe, við Bastilluna með einni lítilli sænskri sem leifði strákunum af næsta borði gefa sér undir fótinn og svo var skifst á símanúmerum. Rosalega er ég fegin að vera 34 ára en ekki 24 ára og vera ekki í þessum pakka. Geta farið út með vinkonum og átt stelpukvöld án þess að nokkur sé að spá í einhverjum strákum.

Þrátt fyrir að Brynja hafi verið hér í prógrami og ég föst í minni vinnu og fundum þá náðum við samt að eiga góðar stundir saman. Sérstaklega í gær, seinasta daginn hennar. Fórum í búðarráp á Champs Élisées. Næst þegar hún kemur ætlar hún að koma með hæla og stæl og þá förum við og gellumst um. Sé okkur alveg máta kjóla hjá Hugo Boss, Chanel og Chloé. Þessi mynd af okkur er tekin fyrir utan Zara þar sem við sáum geðveika gull hæla... rúmur mánuður í útsölur.... ég þrauka.
Brynja fór síðan aftur til Svíþjóðar seinnipartinn í gær. Mikið er gott að fá vinkonur sínar í heimsókn. Þessar frönsku vinkonur komast enganvegin með tærnar þar sem þið hinar hafið hælana. Knús og kossar til ykkar allra, mér þykir svo vænt um ykkur.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ! Gaman að lesa bloggið þitt, sértaklega þegar ég á að vera að lesa fyrir próf, er bara með einbeitingarskort dauðans þessa stundina,
knús og kossar
Ása Vala

27 apríl, 2006 16:27  
Blogger Berglind Rós Magnúsdóttir said...

Gaman að þú skyldir kíkja á bloggið mitt og um leið gefa mér linkinn á þitt. Skemmtilegt blogg og ég sé að við höfum byrjað að blogga á svipuðum tíma. Gaman að geta fylgst svona með þótt langt sé á milli.
Bestu,
Linda.

28 apríl, 2006 02:59  
Blogger brynjalilla said...

takk fyrir síðast dúllan mín. Mikið áttum við góðar stundir og mig dreymdi gullskóna í nótt. Við stöndum við loforðið sem við gáfum hvor annarri....við sjáumst aftur á þessu ári!

28 apríl, 2006 11:54  
Anonymous Nafnlaus said...

Úllala, mikið hefði verið gaman að rölta með ykkur Brynju um París .... *andvarp*
En ég var sjálf að slaka á í Bárðardal um síðustu helgi og náði góðum stundum í náttúrunni og með fjölskyldu og vinum.
Spurning að plana bara parísarferð með haustinu ?!?

28 apríl, 2006 16:02  
Blogger imyndum said...

Já, er ekki líka kominn tími á þig? Rómantísk barnlaus helgarferð í París... göngutúrar meðfram Signu, rauðvínsglas á verönd uppi við Montmartre, froskalappir og sniglar... og svo náttúrulega besta vinkonan sem kann á þetta alltsaman :)Ég hlakka til bara við tilhugsunina

28 apríl, 2006 17:31  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Rósa mín.
Gaman að geta fylgst svona með, ég held bara að Marvan sé líkur mömmu sinni. Það hefur greinilega verið gaman hjá ykkur. Pakki á leiðinni til þín með Svanhvíti. Kveðja héðan úr sólinni ég held að það sé 15 stiga hiti.
Kvaðja mamma

28 apríl, 2006 18:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl elsku Rósa Rut.
Mikið er nú gaman að hafa komist á bloggsíðuna þína en ég fann linkinn hjá Brynju systir.
Það er svo gaman að fá fréttir af þér og hvernig þér gengur.
Það er líka alveg frábært að upplifa útlöndin í gegnum aðra þegar maður býr bara í sinni litlu íslensku sveit.
Vona bara að þú haldir áfram að dafna sem mest og best.
kær kveðja
Áslaug Brynjusystir

29 apríl, 2006 14:21  

Skrifa ummæli

<< Home

eXTReMe Tracker