sunnudagur, janúar 03, 2010

1sta vikan


Fyrsta vikan liðin í lífi sonarins unga. Við komum heim af sjúkrahúsinu á gamlársdag eftir frábæra umönnun og aðhlinningu á vöggudeild. Stubburinn sem fæddist örlítið fyrir áætlaðan tíma vó ekki nema 2485g sem gera rétt um 10 merkur og 46.5 cm virðist allur vera koma til. Ég þarf að halda vel að honum brjóstinu þar sem hann þreytist fljótt og geri lítið annað en að skipta um bleijur, gefa brjóst, láta ropa, róa niður histeríuköst sem hann tekur annaðslagið, sérstaklega við byrjun brjóstagjafar, verður ofuræstur, veit ekki alveg hvað það er, en við erum í því að kinnast þessa dagana og ég vona það komist í lag. Fyrstu næturnar voru einnig mjög líflegar og náði hann að halda mér vakandi 2 nætur í röð á 3 og 4 degi. Við erum líka reyna koma reglu á það með því að halda honum pínu vakandi yfir daginn.

Við tökum fullt af myndum á hverjum degi, en þær eru allar af littla stubb. Ég býst því við að koma okkur upp barnalands síðu eins og aðrir. Bloggið hér fer því í pásu fram til vors eða þegar við förum á stjá aftur meðal fólks. Læt vita þegar barnalandssíðan verður komin upp þannig hægt verði að fá áfram reglulegar fréttir af okkur.

Takk fyrir allar kveðjurnar sem við höfum fengið hér og annarstaðar, takk Inga fyrir almannatengslin.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Verði þér að góðu kæra systir!!

Mikið er hann frændi minn fallegur og svakalega mannalegur miðað við að "eiga ekki" að vera fæddur ennþá.

Hlakka ótrúlega mikið til að kyssa ykkur og knúsa :o) Hér er allt að verða klárt fyrir komu "drottningarinnar" svo það er spurning um að fara baka smá til að eiga í frysti fyrstu dagana heima með krílið og 2.5árs einkaþjálfarann :o)

Knús og kossar,
Inga og hennar fólk í Lancaster

03 janúar, 2010 17:15  
Blogger Kristín said...

Hann er guðdómlegur. Ég er alveg við það að bara koma akandi til ykkar:) Þúsund kossar til ykkar aftur og aftur.

03 janúar, 2010 22:59  
Anonymous Nafnlaus said...

Fallegur er hann eins og foreldrarnir! Mér fyndist reyndar allt í lagi að myndabloggið yrði bara myndir af honum á hverjum degi í daglega "drekka-ropa-kúka" amstrinu :)
Enn og aftur til hamingju með soninn og ég hlakka til að fara að kalla hann ..... !
Kossar, Ingveldur.

04 janúar, 2010 00:46  
Anonymous Nafnlaus said...

Tek undir athugasemdir hér ad ofan, skil ad faerslur thurfi smà pàsu en endilega làttu vita thegar nafnid kemur
knùs og kossar
A

04 janúar, 2010 09:24  
Anonymous Nafnlaus said...

Mikið er hann nú yndislegur og fallegur þessi litli frændi minn, hlakka ekkert smá til að hitta hann og ykkur líka
knús og kossar
Ása

04 janúar, 2010 13:38  
Blogger imyndum said...

Ég sé nú ekki mikið til fyrirstöðu að þú setjist undir stíri og stefnir á Brussel kæra Kristín. Tengdó er hjá okkur fram til miðjan jan, þá fer hún í mánuð til Sviss og kemur svo aftur í 2 vikur eða svo. Kúturinn má reyndar ekki vera innan um önnur börn svona til að byrja með vegna þess hversu lítill og léttur hann er. En um 1 mánaðar aldurinn verður hann líklegast orðin borubrattari. Ég myndi alveg athuga þetta ef ég væri þú.

Við látum vita þegar nafnið kemur, það eru nokkur núþegar í mátun.

04 janúar, 2010 14:17  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilegar hamingjuóskir til ykkar allra; ykkar hjónanna með að eignast heilbrigt barn; og drengsins með að eignast svona góða foreldra. Gangi ykkur allt í haginn!

Kveðja,
Lára

06 janúar, 2010 13:08  

Skrifa ummæli

<< Home

eXTReMe Tracker