fimmtudagur, október 15, 2009

Drekk um líter af mjólk á dag síðan ég kom heim frá Kanada


4 Comments:

Blogger imyndum said...

Veit ekki alveg af hverju ég er svona mjólkurþyrst, yfirleitt finnst mér gott að drekka létta mjólk við þorsta en undanfarna daga hefur mjólkurþambið alveg farið úr böndunum. Kanski er þetta eitt af þessum dæmum þar sem ófrískar konur fá "æði" fyrir einhverri matartegund. Ég næ þó (enn) að stoppa mig af eftir líterinn.

15 október, 2009 17:09  
Anonymous Nafnlaus said...

Ekkert skrýtið að þú þambir mjólk, Brynja í mörgþúsundkílómetra fjarlægð, mjólk er kannski það sem kemur næst og svo ku hún vera holl

15 október, 2009 17:24  
Blogger imyndum said...

Jú ætli það sé ekki það, búin að fá yfir mig nokkrusinnum á seinustu mánuðum rosalega löngun í Brynjuís og því miður kemst enginn ís hérna í háfkvisti við hann. Búin að reyna alskonar mjólkurhristinga... en nei, vantar þetta ferska krapabragð.

15 október, 2009 17:37  
Anonymous Nafnlaus said...

Líkaminn kallar á kalkið í mjólkinni! Eins gott að hlusta á hann ;-)

Kveðja,
Lára

16 október, 2009 16:49  

Skrifa ummæli

<< Home

eXTReMe Tracker